Fréttir

„Ef það kemst vatn þá kemst raki og mygla“

Fjárfestar ráða ferðinni á kostnað fagþekkingar – dýrkeypt mistök í raka- og myglumálum

Jón Sigurðsson, formaður Meistarafélags húsasmiða, lýsir þungum áhyggjum af stöðunni á byggingamarkaði í samtali við Bítinu á Bylgjunni. Þar gagnrýnir hann að fjárfestar hafi tekið völdin af byggingameisturum, nám iðnaðarmanna hafi verið stytt og þekking sé að tapast. Afleiðingarnar blasi við í rándýrum raka- og mygluskemmdum, líkt og í hótelturninum við Skúlagötu og Kársnesskóla, þar sem ýmist er byggt of hratt eða húsum lokað of seint.

Lestu viðtalið í heild sinni á Vísi →