Greiður aðgangur að vinnustaðanámi

Félag pípulagningameistara, FP leggur mikla áherslu á að nemar eigi greiðan aðgang að vinnustaðanámi. Félagsmenn FP kappkosta að haga starfsemi fyrirtækja sinna á þann veg að þeir geti tekið nema í vinnustaðanám og stuðlað þannig að vexti og viðgangi pípulagningaiðninnar. 

Nemastofa atvinnulífsis sem er í  jafnri eigu IÐUNNAR og RAFMENNTAR var sett á laggirnar til að vinna að bættu vinnustaðanámi og fjölgun faglærðs starfsfólks í atvinnulífinu ásamt því að aðstoða við að halda uppi gæðum vinnustaðanáms og halda úti kynningu á iðn- og starfsnámi. FP vinnur náið með Nemastofu atvinnulífsins og hvetur félagsmenn, skóla og nema til að leita til Nemastofu atvinnulífsins um allt það sem tengist vinnustaðanámi.