Þorsteinn Einarsson frá Lagnaþjónustu Þorsteins

Viðbragðssveit pípulagningameistara var að störfum í Grindavík

Þann 10 nóvember leituðu Almannavarnir til Samtaka iðnaðarins vegna neyðarástands sem þá hafði verið lýst yfir í Grindavík. Kannað var hvort SI gæti sett saman hópa pípara og rafvirkja sem gætu komið að björgun húseigna frá yfirvofandi skemmdum á lagnakerfum. Haft var samband við formenn FP og SART sem þá voru staddir í erlendis ásamt viðskiptastjóra. Vel var tekið í þessa umleitan og SI kom þeim skilaboðum til Almannavarna að ef þörf yrði á aðstoð þá væri atvinnurekendur í þessum iðngreinum reiðubúnir að koma að þessu máli.
þann 23. nóvember var svo unnið mikið þrekvirki þegar að öflug sveit pípulagningamanna úr Félagi Pípulagningameistara fór að beiðni Almannavarna inn í Grindavík og kom hita á rúmlega 80 hús sem voru án hita eftir að hitakerfi HS veitna komst í lag eftir hamfarirnar dagana þar á undan. 

Í kvöldfréttum RÚV fimmtudag 23/11 var greint frá því að á milli 40 og 50 pípulagningamenn væru að störfum í Grindavík til að tryggja lagnir. Pípulagningasveit Almannavarna var mætt til Grindavíkur auk rafverktaka á vegum Samtaka rafverktaka. Starfsmenn HS Veitna voru einnig að störfum við að koma stofnlögnum í lag. Í viðtali Benedikts Sigurðssonar, fréttamanns, við Þorstein Einarsson hjá Lagnaþjónustu Þorsteins í Grindavík sem er aðili að Félagi pípulagningameistara kemur fram að það séu um 80 hús sem sé verið að koma hita á og gera þau klár fyrir veturinn sem sé að koma. Þorsteinn telur að það ætti að vera kominn hiti á öll hús eftir daginn. Það séu þó undantekningar, sum hús séu ónýt og bannað að fara inn í þau af öryggisástæðum en þau séu fá. Hann segir frá því að byrjað sé að mynda lagnir og hæðamæla. Þorsteinn segir að það sé ekki hægt að meta hvort lagnir séu ónýtar fyrr en búið sé að skoða þær.

Í fréttinni kemur fram að ekki sé búið að mynda þær lagnir í þeim hverfum sem verst hafa orðið úti. 

Sjá einnig frétt á vef SI Hér